11. júní 2018 10:10
Nefndarstörf í Dalabyggð
Nýkjörin sveitarstjórn Dalabyggðar óskar eftir því að einstaklingar sem hafa áhuga á að starfa í nefndum Dalabyggðar 2018-2022 gefi kost á sér með því að senda tölvupóst á dalir@dalir.is eða hafa samband við skrifstofu Dalabyggðar í síma 430-4700.
Sveitarstjórn mun skipa í flestar nefndir á 162. fundi sveitarstjórnar þann 14. júní nk. Þeir sem hafa áhuga á nefndarstörfum þurfa því að senda póst og/eða hafa samband við skrifstofu fyrir hádegi 14. júní nk.
Nefndirnar sem um ræðir eru nefndir skv. A-hluta 48. gr. samþykkta um stjórn sveitarfélagsins Dalabyggðar.
1. Umhverfis- og skipulagsnefnd (5 aðalmenn og 5 varamenn)
2. Félagsmálanefnd (3 aðalmenn og 3 varamenn)
3. Fræðslunefnd (5 aðalmenn og 5 varamenn)
4. Menningarmálanefnd (3 aðalmenn og 3 varamenn)
5. Atvinnumálanefnd (5 aðalamenn og 5 varamenn)
6. Fjallaskilanefndir (3 aðalmenn og 3 varamenn í hverja fjallskilanefnd)
Fyrir hönd nýkjörinnar sveitarstjórnar
Eyjólfur Ingvi Bjarnason
starfsaldursforseti