Auðarskóli
Auðarskóli var stofnaður þann 1. ágúst 2009. Skólinn varð til við sameiningu allra skólastofnana í Dalabyggð. Skólinn er því samrekinn skóli með fjórar fjárhagslega sjálfstæðar deildir; leikskóla, tónlistarskóla, grunnskóla og mötuneyti.
Skipurit Auðarskóla
Skólastefna Dalabyggðar
Leikskóli
Leikskólinn er til húsa við Miðbraut í Búðardal. Í leikskólanum er pláss fyrir um 40 börn samtímis. Leikskólinn opnar 7:45 og lokar 17:15. Boðið er uppá vistun í 4-9 klukkustundir.
Vistunarreglur leikskólans.
Gjaldskrár
Verklagsreglur leikskóla
Grunnskóli
Grunnskólinn er til húsa við Miðbraut í Búðardal og stunda að jafnaði tæplega 100 börn nám þar í 1. – 10. bekk. Kennsla fer að miklu leyti fram í aldursblönduðum hópum.
Gjaldskrár
Tónlistarskóli
Tónlistarskólinn er til húsa í Dalabúð. Þar er boðið upp á fjölbreytilegt tónlistarnám fyrir nemendur á grunnskólaaldri.
Verklagsreglur tónlistarskólans.
Gjaldskrár
Mötuneyti Auðarskóla
Mötuneyti Auðarskóla er rekið í Dalabúð. Mötuneytið sér leik- og grunnskóla fyrir máltíðum alla virka daga.
Gjaldskrár
Skólaakstur
Skólakstur er talsverður í Dalabyggð og er hann í boði fyrir bæði leik- og grunnskólanemendur.
Um skólaakstur í Dalabyggð gilda Reglur um skólaakstur í grunnskóla nr. 656/2009 með síðari breytingum ásamt sérákvæðum sem gilda frá 1. júní 2011.
Auðarskóli, Miðbraut 10, 370 Búðardal. Kt. 510694-2019, sími 434 1133, fax 434 1406, netfang audarskoli @audarskoli.is og heimasíða www.audarskoli.is