- Sími
Opinn kl. 09:00 – 13:00 alla virka daga
- 430 4700
- Fyrirspurnir / Ábendingar
Velferð og fjölskylda
Stjórnsýsla
Viðburðir
...
-
Opna18AprílFélag eldri borgara kveður veturinn
Félag eldri borgara í Dalabyggð og Reykhólahreppi - Fimmtudagurinn 18. apríl, kvöldverður að Laugum kl. 18:00. Þá er komið að loka hitting vorsins hjá félagi eldri borgara, það er kvöldverður að Laugum fimmtudaginn 18. apríl, þetta er sameiginlegur viðburður með Reykhólum og Hólmavík. Verð er 8.500 á mann. Þarna verður veturinn kvaddur með mat og söng. Matseðilinn hljómar upp á eftirfarandi: Súpa og nýbakað brauð. Lambasteik með tilheyrandi. Eftirréttur og kaffi. Jón Egill Jónsson tekur ...
Laugar í Sælingsdal,Fimmtudagur 18 Apríl 2024 Tími 18:00 -
Opna20AprílAð segja sögur – sagnanámskeið
Laugardaginn 20. apríl, kl. 13:00-17:00 í Nýsköpunarsetri Dalabyggðar. Hæfileikinn til að segja sögur, býr í okkur öllum. Námskeiðinu er ætlað að rækta þennan hæfileika með leiðsögn um aðferðir sagnalistar og þann galdur sem hægt er að skapa með því að segja sögu. Hér blandast saman fróðleikur frá leiðbeinendum og æfingar þátttakenda, sem prófa sig áfram og byggja þannig upp reynslu og kjark á sagnaslóðinni. Fjallað verður um: Efniviðinn, þ.e. sögurnar sjálfar – það að ve...
Nýsköpunar- og frumkvöðlasetur Dalabyggðar (Stjórnsýsluhúsi), Miðbraut 11Laugardagur 20 Apríl 2024 Frá 13:00 Til 17:00 -
Opna20AprílSagnavaka í Vínlandssetrinu
Sagnavaka í Vínlandssetrinu 20. apríl kl.20:00 Sögustund þar sem enginn veit nákvæmlega hvað gerist! Ingi Hans, Sigurborg o.fl. segja sögur. Allir hjartanlega velkomnir á þessa skemmtilegu kvöldvöku. Dalakot verður með öl og kaffi til sölu. Umfram allt ætlum við að hafa gaman!
Vínlandssetur, Leifsbúð, BúðarbrautLaugardagur 20 Apríl 2024 Tími 20:00 -
Opna27AprílMugison í Dalíu, Búðardal
Mugison verður í Dalíu (Miðbraut 15) laugardaginn 27. apríl 2024 kl 20:00. Húsið opnar kl.18:00. "Góðan og blessaðan daginn Mikið hlakka ég til að koma til ykkar í Búðardal eftir nokkrar vikur og sprella. Ég verð einn í þetta sinn og lofa að spila langt langt yfir getu. Stuðkeðja, Mugison"
Dalía, Miðbraut 15Laugardagur 27 Apríl 2024 Tími 18:00 -
Opna05JúlíHeim í Búðardal 2024
Bæjarhátíðin Heim í Búðardal verður haldin fyrstu helgin í júlí - frekari upplýsingar síðar.
--Frá föstudagur 5 Júlí 2024 Til sunnudagur 7 Júlí 2024 -
Opna05JúlíSoffía og Pétur Ben í Dalíu
Soffía og Pétur Ben halda tónleika í DALÍU, föstudagskvöldið 5. júlí kl. 20:00 í tilefni Bæjarhátíðar í Búðardal. Með þeim verða bassaleikarinn Fríða Dís og slagverksleikarinn Magnús Trygvason Eliassen. Soffía er borgfirsk söngkona og tónskáld. Pétur Ben er kvikmyndatónskáld, framleiðandi og lagahöfundur og saman munu þau búa til frábæra kvöldstund með blöndu af tónlist þeirra beggja. Aðgangseyrir er 4.900 kr.- (miðasala verður kynnt síðar)...
Dalía, Miðbraut 15Föstudagur 5 Júlí 2024 Tími 20:00 -
Opna27JúlíPósthlaupið 2024
Skráning er hafin í Pósthlaupið sem haldið verður í Dalabyggð laugardaginn 27. júlí næstkomandi. Pósthlaupið er utanvegahlaup og er þetta í þriðja skiptið sem það er haldið. Hlaupið er eftir gamalli landpóstaleið í geysifögru umhverfi. Veðrið lék við okkur í fyrra og gleðin skein úr hverju andliti. Það er svo gaman að kynnast nýjum hlaupaleiðum og setja sig um leið í spor póstmanna sem fóru fótgangandi eða ríðandi yfir holt og hæðir. Þátttakendur hafa val um þrjár vegalengdir: 7 km, 26 km ...
Sveitarfélagið Dalabyggð, 370 - 371 BúðardalLaugardagur 27 Júlí 2024
--
--
--
--
--